Hallelúja
Drottinn Kristur hefur blessað okkur og senn líður að okkar æsispennandi útilegu Rs. Halloween
Útilegan hefst föstudagskvöldið 31. október og hvetjum við sem flesta að taka hópstrætó og kvöldmat með Ester, Herði, Valda, Kristínu H og fleira skemmtilegu fólki. En þeir sem vilja taka strætó þá fer strætóinn kl. 18:48 frá Hlemmi og ætlum við að stoppa í Mosó og borða saman kvöldmat og verðum komin upp í Þrist um 9 leitið.
brot úr dagskrá:
Föstudagur: Glens og Village 44
Laugardagur: Tjill, ganga á Móskarðshnjúk, kvöldvaka og draugaKanamót svo eitthvað sé nefnt 
Sunnudagur: Brunch um 11 leitið og sund í Mosó eftir þrif (sundgjald ekki innifalið)
En við viljum taka það fram að ef fólk vill bara vera ein nótt kostar 1500 og 2500 tvær nætur (Brunch innifalið í gjaldi) og þeir sem koma í heimsókn yfir nóttina þurfa að borga. Þeir sem mæta bara í brunch þurfa að borga 700 krónur.
Það eru 25 búnir að skrá sig og við bíðum spennt eftir fleiri skráningum á rs.group@kopar.is eða sms í síma 848-7953 (Ester) eða 848-6258 (Anna Marta). Það sem þarf að koma í skráningunni er nafn, aldur, félag, síma, sveit, nafn og símanr aðsandanda (fyrir yngri en 18).