Saman 2008
Nú er skátastarfið hjá RS. Group byrjað að fullu og fórum nokkrir Grouparar á Saman í Þórsmörk um helgina.
Við löguðm af stað seinnipartinn á föstudaginn og vorum komin upp í Þórsmörk um 9 leitið. Við komum okkur fyrir og fórum svo í næturleik, en antí nasistarnir náðu sprengjunni af nasistunum og unnu því leikinn.
Á laugardeginum var mikil og skemmtileg dagskrá en við fórum í skyndihjálp, rötun, sig og flyfox við krossá og enduðum á að vaða yfir Krossá og áin var geðveikt blaut. Um kvöldið var svo haldin massíf kvöldvaka þar sem skemmtiatriðin slógu í gegn
en í atriðinu hjá okkur voru um 70% leikaranna tré.
Hjálparsveitarpakkið þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að reka okkur upp í rúm um kvöldið þar sem við vorum flest dauð úr þreytu og sofnuðum um hálf 1 leitið (nema þeir sem voru of uppteknir í hözzlinu og þeir sem gátu ekki sofið fyrir kossahljóðum).
Á sunnudaginn var hið fræga Metamót haldið en Kóparnir, Anna Marta, Edda og Tinna sáu um það og skemmtu allir sér mjög vel Guðbjög tók þátt í kappræðum fyrir hönd Kópa og sigraði að sjálfsögðu
Eftir tiltekt var haldið heim og voru allir vel þreyttir í rútunni eftir vel heppnaða og skemmtilega helgi.
Og muniði að skoða myndir á myndasíðunni 
Kveðja Ester