14. janúar 2009 klukkan 12:38
Hey píps!
þar sem ég mundi allt í einu að ég er í vefnefnd þá ákvað ég að skella einhverju hér inn ;)
Seinasta fund var rætt um að fara að gera einhverja alvöru úr þessu starfi (eftir að það datt aðeins niður eftir Halloween ) og líst mér bara vel á það (var ekki á fundinum því ég var upptekin í að labba fjall)...
Næsta fund er Hellaferð svo allir koma vel klæddir og með vasaljós offkors ;D það þarf auðvitað ekki að láta skátana vita hvernig maður á að klæða sig!
kv. vefnefnd
Rekkaskátasveitin Group
01. desember 2008 klukkan 17:55
Hei það er í boði að fá kynningu á Roverway á næsta fundi. Það fellur samt svolítið um sjálft sig ef að það ætlar enginn að mæta. Só eigum við að hafa fund á fimmtudag og fá roverway kynningu eða fara í jólafrí???
Það er ætlast til að þið kommentið. Annars ... þið vitið hvað.
Valdi hvað ertu gamall?
Rekkaskátasveitin Group
23. október 2008 klukkan 22:45
Drottinn Kristur hefur blessað okkur og senn líður að okkar æsispennandi útilegu Rs. Halloween
Útilegan hefst föstudagskvöldið 31. október og hvetjum við sem flesta að taka hópstrætó og kvöldmat með Ester, Herði, Valda, Kristínu H og fleira skemmtilegu fólki. En þeir sem vilja taka strætó þá fer strætóinn kl. 18:48 frá Hlemmi og ætlum við að stoppa í Mosó og borða saman kvöldmat og verðum komin upp í Þrist um 9 leitið.
brot úr dagskrá:
Föstudagur: Glens og Village 44
Laugardagur: Tjill, ganga á Móskarðshnjúk, kvöldvaka og draugaKanamót svo eitthvað sé nefnt 
Sunnudagur: Brunch um 11 leitið og sund í Mosó eftir þrif (sundgjald ekki innifalið)
En við viljum taka það fram að ef fólk vill bara vera ein nótt kostar 1500 og 2500 tvær nætur (Brunch innifalið í gjaldi) og þeir sem koma í heimsókn yfir nóttina þurfa að borga. Þeir sem mæta bara í brunch þurfa að borga 700 krónur.
Það eru 25 búnir að skrá sig og við bíðum spennt eftir fleiri skráningum á rs.group@kopar.is eða sms í síma 848-7953 (Ester) eða 848-6258 (Anna Marta). Það sem þarf að koma í skráningunni er nafn, aldur, félag, síma, sveit, nafn og símanr aðsandanda (fyrir yngri en 18).
Rekkaskátasveitin Group
13. október 2008 klukkan 19:35
R.S. HALLOWEEN er klassa útilega þar sem hryllingur og gleði samblandast í einhvað ónáttúrulegt.
Gleði-hryllingurinn mun hefjast 31.október og mun standa yfir fram á sunnudaginn þar sem Brunch verður í fyrir fáeina aura.
Brunch er í boði fyrir alla, konur og kalla hvort sem þið mætið í útileguna eður ei.(700kr. fyrir fólk sem kemur bara í brunch)
Ýmis dagskrá verður
í boði svo sem Varúlfur, Næturganga á Móskarðshnjúka, Kvöldvaka,
draugaKANAMÓT, keðjusög(ng)kennsla í boði Binnster, Fjöldamorð í
myrkri og kistulangning!!
Kostnaður við ferðina er 2500 krónur
tímasetningar: Mæting upp að Hrafnhólum klukkan 20:00
Skráningar sendist á rs.group@kopar.is
þar sem eftirfarandi þarf að koma fram:
Nafn, aldur, félag, síma, sveit, mynd (helst) nafn og símanr aðsandenda( yngir en 18)
Koma verður fram hvort að þú verður alla útileguna eða bara í brunch eða bæði.
Athugið
að ráp er ekki vel liðið, annað hvort eruð þið í útilegunni eða ekki,
vinna eða annað slíkt (t.d. dauðsföll vegna ofsahræðslu) er leift
ATH EINGÖNGU FYRIR REKKA, RÓVER OG ELDRI !!!
KOMDU EF ÞÚ ÞORIR! MÚHAHAHA!

Rekkaskátasveitin Group
09. október 2008 klukkan 21:44
R.S. HALLOWEEN er klassa útilega þar sem hryllingur og gleði samblandast í einhvað ónáttúrulegt.
Gleði-hryllingurinn mun hefjast 31.október og mun standa yfir fram á sunnudaginn þar sem Brunch verður í fyrir fáeina aura.
Brunch er í boði fyrir alla, konur og kalla hvort sem þið mætið í útileguna eður ei.(700kr. fyrir fólk sem kemur bara í brunch)
Ýmis dagskrá verður í boði svo sem Varúlfur, Næturganga á Móskarðshnjúka, Kvöldvaka, draugaKANAMÓT, keðjusög(ng)kennsla í boði Binnster, Fjöldamorð í myrkri, kistulangning og massífur nætuleikur þar sem óttinn tekur öll völd (hjálparsveit tilbúin á Hrafnhólum fyrir þá sem ku eigi snúa aftur!
Kostnaður við ferðina er 3000 krónur
tímasetningar: Mæting upp að Hrafnhólum klukkan 20:00
Skráningar sendist á rs.group@kopar.is
þar sem eftirfarandi þarf að koma fram:
Nafn, aldur, félag, síma, sveit, mynd (helst) nafn og símanr aðsandenda( yngir en 18)
Koma verður fram hvort að þú verður alla útileguna eða bara í brunch eða bæði.
Athugið að ráp er ekki vel liðið, annað hvort eruð þið í útilegunni eða ekki, vinna eða annað slíkt (t.d. dauðsföll vegna ofsahræðslu) er leift
ATH EINGÖNGU FYRIR REKKA, RÓVER OG ELDRI !!!
KOMDU EF ÞÚ ÞORIR! MÚHAHAHA!

Rekkaskátasveitin Group
05. október 2008 klukkan 17:29
Hæhæ allir sætu rekkaskátar á Íslandi!!!
Við í Rekkar Group höfum ákveðið að halda Halloween útilegu upp í Þrist helgina 31. október - 2. nóvember og Bruns á sunnudeginum.
Brjálaður stemmari og geðveikt fjör.
Mögnuð kvöldvak með draugunum og blóðuga hnífnum!!
Það koma fleir upplýsingar í vikunni :)
Rekkaskátasveitin Group
27. september 2008 klukkan 19:06
Næsti Group fundur er á fimmtudaginn, 2. október og þá erum við að fara í myndatöku, minni alla á að mæta í svörtum fötum með litaívafi.
Alexander
Anna Guðný ..
Anna Marta Blár
Brynjar Rauður
Edda Fjölublár
Ester Appelsínugulur
Gísli ..
Guðbjörg Gulur
Hákon Rauður
Hreiðar Grænn
Hörður appelsínugulur
Kristín H. ..
Kristín K. Blár
Ólöf Grænn
Rakel Gull
Stefán ..
Tinna Appelsínugulur
Tryggvi Bleikur
Unnur Gulur
Valdimar Fjólublár
Örvar Rauður
Þeir sem eru ekki búnir að velja sér lit skrifa þann lit sem þeir vilja hérna í komment, ekki fleiri en 3 með hvern lit!! (rauður er uppseldur)
Rekkaskátasveitin Group
19. september 2008 klukkan 09:03
Jáhh í gær var fimmtudagur og hvað þýðir það? Group fundur! Það var nú mikið rætt og einhverjar nefndir settar.
Alþjóðaverkefnisnefnd: Anna Marta, Ester, Valdi og Hörður
Skemmtinefnd: Hákon, Binni og Stebbi
Útilegunefnd: Unnur, Tinna og fleirri (heh..)
Vefsíðunefnd: Anna Marta og Edda
þó að þessar nefndir séu svona núna munum við vera dugleg að hræra aðeins í þessu og öllum í group er velkomið að blogga inná þessa síðu! Endilega kommentið á þetta hjá OKKUR.
-Anna Marta
ps. það er komin í gang mætingar keppni, allir að koma með mynd af sér næst!
ps.ps. VALDI Á AFMÆLI Í DAG! JEIII!!!
Rekkaskátasveitin Group
09. september 2008 klukkan 19:33
Nú er skátastarfið hjá RS. Group byrjað að fullu og fórum nokkrir Grouparar á Saman í Þórsmörk um helgina.
Við löguðm af stað seinnipartinn á föstudaginn og vorum komin upp í Þórsmörk um 9 leitið. Við komum okkur fyrir og fórum svo í næturleik, en antí nasistarnir náðu sprengjunni af nasistunum og unnu því leikinn.
Á laugardeginum var mikil og skemmtileg dagskrá en við fórum í skyndihjálp, rötun, sig og flyfox við krossá og enduðum á að vaða yfir Krossá og áin var geðveikt blaut. Um kvöldið var svo haldin massíf kvöldvaka þar sem skemmtiatriðin slógu í gegn
en í atriðinu hjá okkur voru um 70% leikaranna tré.
Hjálparsveitarpakkið þurfti ekki að hafa mikið fyrir því að reka okkur upp í rúm um kvöldið þar sem við vorum flest dauð úr þreytu og sofnuðum um hálf 1 leitið (nema þeir sem voru of uppteknir í hözzlinu og þeir sem gátu ekki sofið fyrir kossahljóðum).
Á sunnudaginn var hið fræga Metamót haldið en Kóparnir, Anna Marta, Edda og Tinna sáu um það og skemmtu allir sér mjög vel Guðbjög tók þátt í kappræðum fyrir hönd Kópa og sigraði að sjálfsögðu
Eftir tiltekt var haldið heim og voru allir vel þreyttir í rútunni eftir vel heppnaða og skemmtilega helgi.
Og muniði að skoða myndir á myndasíðunni 
Kveðja Ester
Rekkaskátasveitin Group
21. ágúst 2008 klukkan 16:47
Góðann daginn Grouparar, Grouppíur og aðrir fylgihlutir!Nú er kominn tími á að snúa þessu svokallaða starfi við og gera það öflugra en kafteinn ofurbrók!
Allir að mæta niður að Bakka (það er skátaheimilið dömmí!) í skátabúning með gleðina að vopni, við ætlum að rífa okkur upp úr kojuskátastílnum og hisja upp um okkur brækurnar og láta súperskátaeiginleikana sem búa innra með okkur öllum skína í gegn!
MÆTING KLUKKAN 20:00 (aðsjálfsögðu mætum við á réttum tíma)
Rekkaskátasveitin Group